Girðingin kringum Sólbúa er úr sér gengin og löngu orðið tímabært að endurnýja/laga t.d. meðfram göngustíg sem liggur úr Háagerði að Sólbúum/Breiðagerðisskóla.
Því miður hefur alveg gleymst að halda grindverkinu í kringum Sólbúa við í áranna rás. Hún er því orðin mjög léleg og illa farin. Vonandi verður bót á því og umhverfi Sólbúa fái smá andlitslyftingu.
Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2018 þar sem þetta verkefni er nú þegar á framkvæmdaáætlun. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!
Ef grindverkið þarf að vera á annað borð þá er lágmark að það þjóni tilgangi sínum
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation