Leiktæki fyrir eldri nemendur á lóð Hvassaleitisskóla

Leiktæki fyrir eldri nemendur á lóð Hvassaleitisskóla

Óska eftir því að fá ílangt trampólín á lóð Hvassaleitisskóla á leiksvæði ætlað eldri nemendum. Hægt væri að nota það í íþróttakennslu á skólatíma, í frímínútum og vonandi hvetja krakka til að nota skólalóðina utan skólatíma. Mér finnst skólalóðin lítið notuð eftir skóla og á sumrin og er ekki ólíklegt að krökkum finnist lóðin lítið spennandi. Skólalóð Fossvogsskóla er full af börnum næstum hvenær sem er enda er margt spennandi hægt að gera þar.

Points

Fá krakka til að nota skólalóðina meira utan skólatíma.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2018 þar sem verkefnið sem um ræðir í hugmyndinni er í öðru ferli innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Hugmyndinni verður vísað sem ábendingu inn í það ferli. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information