Fólk ekur oft alltof hratt um hverfið. Það hefur orðið sprenging í fjölda barna á svæðinu og því hefur þörfin á betri umferðarmenningu aldrei verið meiri. Skemmst er að minnast þess að fyrir nokkrum árum var keyrt á barn í Blesugróf og hefur staðið til að auka öryggi íbúa og annarra vegfarenda síðan.
Stóraukinn fjöldi barna í hverfinu kallar á aukið umferðaröryggi, frekari tillitssemi og virðingu við þessa mikilvægu og viðkvæmu einstaklinga.
Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!
Mikil þörf á hraðahindrunum í Grófirnar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation