Setjum blómaker efst á Njarðargötu, við hornið á safni Einars Jónssonar. Þarna efst á Njarðargötunni, við gatnamótin við Þórsgötu, leggja alltof margir bílum sínum, jafnvel á móti umferð. Bílarnir þrengja mjög að umferðinni og skyggja á útsýni ökumanna á efsta part Njarðargötunnar. Þarna eru fjölmörg börn á leið í leik- og grunnskóla á morgnana og síðdegis svo ökumönnum veitir ekki af allri þeirri útsýn sem þeir gefa haft.
Þetta er einföld lausn og ódýr. Leysir brýnt öryggismál fyrir börn á leið í Austurbæjarskóla. Er til mikilla bóta fyrir ökumenn. Blómaker fegra borgina.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation