Gróðursetja tré á auð svæði í hverfinu og umhverfis það.
Það er svo gaman að sjá muninn á gróðrinum í eldri hverfum borgarinnar í dag og svo fyrir 30 árum. Þessi mikli vöxtur á gróðrinum hefur gert borgina svo mun fallegri að hún jafnast á við gamalgrónar borgir erlendis. Úlfarsárdalurinn ætti ekki að vera nein undantekning í þessum málum.
Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!
Það hafa verið tekin nokkur skref í þessu t.d. við Úlfarsbraut og hringtorgin í útjaðri hverfisins en mörg opin svæði eru ósnert. Fyrirmynd að þessu má sjá í Grafarholtinu.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation